Íbúðarskoðun og húsaskoðun eru af sama meiði.  

Þó er sá munur sem rétt er að hafa í huga að þak, veggir, lóð og ýmis rými eru í sameign ef um íbúðarskoðun að ræða.

Stærð íbúðarinnar og hvað það er sem henni tilheyrir, réttindi sem og rými.

Þetta er athugað sérstaklega þegar um íbúðarskoðun er að ræða.  Kannað er hvernig skráningu íbúðarinnar er háttað. Hvort skráning er rétt hjá Þjóðskrá svo og stærðir.   

Við skoðum:

  1. Ástand íbúðarinna fyrir sölu.
  2. Ástand íbúðar og fasteignar fyrir kaup. 
  3. Viðhaldsþörf íbúðarinnar.
  4. Hvað er framundan í framkvæmdum húsfélgsins. 
  5. Næsta nágrenni, skipulagsskilmála og kvaðir.
  6. Leitað er eftir rakaskemmdum og rakamælt ef tilefni er.
  7. Loftraki mældur.

ibudarskodun.is er hluti af Skoðunarstofunni og hefur aðgang af vel menntuðum og reyndum skoðunarmönnum fasteigna, svo og löggilda aðila í gerð eignaskiptayfirlýsinga frá árinu 1996. 

  "skoðum málið frá öllum hliðum."